|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 46205
|
24.04.2009 19:43:03 / ragga
Jæja það er kominn apríl fyrir löngu! Alveg að koma maí! Ólöf litla sys á afmæli í dag! 23 ára skvísan! Svo styttist í afmæli Patreks! Og minns afmælis....
Kosningar á morgun! Og ég ekki alveg búin að gera upp við mig hvað ég geri! Unnar að vinna alla helgina, þannig að það verður ekki mikið gert! Nema hafa ofan af fyrir börnunum!
Ræktin er númer 1,2, og 3 þessa dagana! Keypti svaðalegan kjól fyrir útskriftina og þá er eins gott að slá ekki slöku við í ræktinn heldur akkúrat öfugt 
Simbi gamli er dáinn, náði 13 árum! En það kemur nýr kettlingur á vesturgötuna í júní!
Svo er ég búin með lokaritgerðina! Bara yndislegt!Hlakka til að útskrifast 20. júní! Það verður svaðalegt partý þá! Bara snilldin ein!
Trampolín í garðinum! Vonandi hlýnar þá! Svo var ég á árshátíð um síðustu helgi með survivor! Svaka stuð! Og geðveikt Sálarball! Þetta eru ofurboltar dauðans n.b.! Hlakka til írsku daganna! Vona að sálin komi aftur í sumar! Skagamenn eru bestir 
Koma svo veit að þið getið skrifað "kvitt" Bið ekki um meira 
»
08.03.2009 21:03:10 / ragga
Hjello.... 
Ár og aldir síðan einhverjar fréttir komu hingað inn af okkur! Veikindi hafa verið að hrjá okkur ansi mikið! Ég og Unnar búin að vera kvefuð ansi lengi, og ég hóstandi eins og versti stórreykingamaður! Ef þetta skánar ekki á næstunni (er búin að vera geltandi í viku) þá fer ég og læt hlusta mig. Svo fékk Patrekur hita seinasta þriðjudag, eftir álfakynninguna (upptaka frá því á facebook síðunni minni!) og fór mest í 39,8 sem er mjög mikið! Og er að fara fyrst í skólann í fyrramálið! Svo kom Lilja heim á föstudaginn með risa hlaupabólu á maganum, og klukkutíma síðar voru komnar ca 15 í viðbót og svo er þetta núna úti um allt! Á bakinu, fótunum, höndunum, hálsinum, eyrunum, hársverðinum og andlitinu! Þannig að hún þarf líklega að vera heima í ca viku! Sem betur fer er ég nánast búin með lokaritgerðina að ég held 
En ég á eftir að horfa á mamma mia, ætli ég leyfi skjátunni ekki að mála og kíki á myndina á meðan! En prinsessan á afmæli í næstu viku, eða 18. mars og verður 3ja ára kjellingin litla, sem er búin að missa litla Kike sinn! En í gær urðum við að láta lóga honum, þótt hann hafi verið oftast góður þá gat hann verið svo brjálaður inn á milli því miður! María vinkona Patreks kom í gær í heimsókn og hann hljóp að henni þegar færi gafst og beit hana illa í fótinn! Unnar átti í fullu fangi með að koma honum í búrið aftur, hann var svo brjálaður! En svona er það! Við prófum kannski aftur eftir ár, en þá fer scnauser hundur á hana Skottu og við kannski prófum þá tík en þær eru víst miklu rólegri og blíðari en hundar! Allt voða sorglegt samt! Búin að setja allt sem Kike litli átti í poka og geymi það í geymslunni! 
Svo er Pabbi að koma heim næsta laugardag og það verður voða gaman að hafa hann heima þegar afmælið hennar Lilju verður en það hittist oft á að hann er úti á sjó! Svo verður risa afmæli hjá Villu næsta laugardag, alveg þrefalt barna afmæli, og svo verður afmælismatarboð um kvöldið hjá Sigga frænda og Elínu í tilefni 26 ára afmæli Hildar! Og svo afmæli hjá Lilju helgina á eftir 
Svo eru ég, Ólöf Inga og Katla alltaf tvisvar í viku á Akraseli að þróa Einingakubba vinnu með opnum og náttúrulegum efnivið. En það kom frétt í seinasta skessuhorni þar sem kom mynd af börnunum þegar við fórum í Trésmiðjuna Akur og létum saga niður trédrumba og bjuggum til skógarkubba. En við ætlum að gera hugmyndamöppu fyrir nýja starfsmenn á leikskóla og kynna þeim almennilega fyrir einingakubbunum, eitthvað sem gleymdist að gera þegar ég byrjaði sem leiðbeinandi enda þoldi ég ekki þessa kubba, því ég fattaði þá ekki og möguleikana sem fylgja þeim! Finnst þeir frábærir í dag! 
Svo styttist í árshátíð Survivor sem verður í 20 kílómetra radíus ca við skagann! Reyndar verður farið lengst á Hvanneyri í sveitahreysti! Svo verður farið í Bjarnalaug og út að borða á galito og svo djamm í heimahúsi! Bara gaman, maður verður að fara að redda pössun og vera tímanleg í því! Hver vill ekki passa börnin mín þau eru svo yndisleg..... 
Annars er ég að spá í að skila auðu í næstu kosningum! Hef alltaf kosið en finnst aldrei neitt gert af því sem er lofað! Finnst það mjög pirrandi! Nenni ekki að standa lengur í þessu rugli 
Ég læt þetta duga í bili! Hvíl í friði Kike litli! Ég sakna þín mikið litli brjálæðingur! 
»
03.01.2009 22:22:14 / ragga
Jæja er ekki rúmlega kominn tími á eitthvað nýtt hér 
Allt að verða vitlaust í mótmælum! Á ekki til orð yfir ruglið í þessu liði þarna á Hótel Borg! Hvað meinar þetta lið eiginlega, hljóta bara að vera einhverjir gangstera vitleysingar sem slæðast þarna með undir fölsku yfirskini til þess að skemma og eyðileggja fyrir öðrum! Ég er bara mjög hneyksluð 
En af okkur er allt gott að frétta bara. Unnar á lögguvakt þessa helgina svo ég er ein í kotinu með börnin, ein sem er sofnuð og svo einn sem hóstar endalaust og svo einn brjálaður úti og urrar og urrar 
Ég er búin að fá þrjár einkunnir, fékk 7 í siðfræði og 6 í barn, fjölskylda og barnavernd og líka í aðferðafræðinni! Á eftir að fá eina sem ég er að bíða óþreyjufull eftir! Óþolandi svona langar biðir alltaf hreint! Skilaði ritgerðinni 4. des takk fyrir og þessir kennarar eiga að fá 3 vikur til að fara yfir en það eru að verða komnar 5 vikur og rúmlega það held ég! Staðlotan fyrir seinustu önnina!!!! Er í vikuna 12.-16.jan! Þá fer ég bara í 3 fög (lokaritgerð, leikir sem kennsluaðferð og vettvangstengt val!) En það verður sko alveg nóg að gera!
Er að spá í að taka bara niður skrautið á mánudag! Er eiginlega alveg búin að fá nóg af þessu jólastansi!! Annars höfðum við það rosalega gott! Maður bara át út í eitt! Enda er það ræktin á mánudaginn svo um munar takk fyrir!! En ég fékk bara þónokkrar jólagjafir; Fékk Emami kjólinn, ilmvatn, bodylotion og sturtusápu í Diesel ilmnum frá Unnari og börnunum! Ólöf og Jóhann gáfu mér eyrnalokka og jackass the movie II, svo gaf mamma mér náttbuxur, ilmvatn og bodylotion í Diesel nýja ilminum! Fengum rúmföt frá ömmu Lillu og afa Sigga og lampa frá Lilju og Geira, svo fékk ég líka söngbók frá ömmu Lillu, fengum svona saumað kríli á kopp sem á stendur wc til að hafa á baðherbergishurðinni og jólasokk frá ömmu Ester, mjög sætt og svo útsaumaða mynd frá patreki sem ég á eftir að setja í ramma og hengja upp við náttborðið hjá mér og svo gifs/leirmótaða hendi frá Lilju sem ég á eftir að hengja upp líka! Er mjög ánægð með þetta 
Lenti svo í góðum díl í Hagkaup í gær, en ég var að skipta wall E, fengum tvær! Of litlum pushup brjóstahaldara, bók sem Lilja fékk og náttbuxunum hans Unnars sem voru allt of stórar! Í staðinn keypti ég: Gott kvöld á dvd fyrir patrek, 500 kr. dýrari bók fyrir Lilju og tvenna push up brjóstahaldara sem kostuðu 1990 stk en hinn of litli kostaði 3490 kr og svo tók ég líka minni náttbuxur og tvennar sokkabuxur á Lilju og fékk 900 krónur til baka. Og tvo sleikjóa með dóti í! Reyndar var 20% afsláttur af sokkabuxunum og brjóstahöldurunum en ég bjóst frekar við því að þurfa að borga, en fékk svo bara afgang! Bara gott mál! 
En nú er pabbi farinn út á sjó, finnst það alltaf jafn leiðinlegt! Kemur aftur 3 febrúar!! Ekkert smá langur tími! Og svo var Unnar að spá í að fara þennan túr! En ég er feginn að hann gerði það ekki! Verandi út á miðju ballarhafi í myrkri næstum allan sólarhringinn! Úff bara spooky 
Jæja ég þarf að fara að skeina!! Bið að heilsa og viljiði gjöra svo vel að kvitta!!!!!
»
19.11.2008 17:05:36 / ragga
Jæja þá er komið að því!
Klukkan er 16.49 á miðvikudegi, Dominos eldar kvöldmatinn, grays er í kvöld, snemma að sofa og svo vakna kl.3.00 því það er flug út kl. 07.35 minnir mig. Ég er búin með öll verkefnin sem þarf að skila svo ég er í ágætis málum! Ætti frekar að fara að lesa undir próf en að vera asnast þetta erlendis eitthvað......sérstaklega að vera að fara í óvinveitt land þar sem íslendingar eru álíka mikið hataðir og Bin Laden gamli í USA! Þetta er agalegt. Við segjumst bara vera annað hvort frá Færeyjum eða Finnlandi! Svo verður bara tekið því rólega, lesið og dúllað sér á meðan kallinn sér um geðveik..........á meðan! 
Annars er ekkert mjög mikið títt. Ég er búin að vera dugleg í ræktinni og passa hvað ég borða, borða hollt og svo fæ ég mér herballife sjeik öðru hvoru þegar ég er búin að borða of mikið yfir daginn og á ekki skilið að fá kvöldmat. Annars er þetta mjög góður morgunmatur og fljótlegur 
Við fórum á Fló á Skinni seinasta föstudag og það var algjör snilld. Við vorum alveg fremst og heyrðum því vel! Nokkrir skagamenn komnir til að kíkja á Halla sinn! Held annars að flestir skagamenn hafi séð þetta verk, þvílíkt skemmtilegt ef þú ert ekki búin að fara. Þú verður ekki fyrir vonbrigðum get ég sagt þér 
Á laugardagskvöldið fórum við með Skaganum og Þ&E á Fjörukrána! Myndirnar frá því kvöldi eru á Facebókinni minni! Mega stuð, góður matur, misgóð tónlist en bara gaman, fætingur og læti...... 
Svo er ég búin með allar barna jólagjafir nema kannski eitthvað aðeins meira fyrir börnin mín! En við fórum með Lilju í göngugreiningu og enduðum við hjá bæklunarsérfræðingi því hún er með 20 gráðu skekkju í ökklunum og ilsig! Er meira að segja mjög slæm. Fær spes inniskó og innlegg og svo á hún víst rétt á tveimur pörum á ári og innleggjum! Kostar ekkert smá mikið en tryggingastofnun á að borga allt að 90% af verðinu. Svo á iðjuþjálfi í leikskólanum jafnvel að kíkja aðeins á hana! Hún er með verki á nóttunni og vill helst sofa uppí með fæturna ofan á okkur til að létta á sínum fótum! Stundum er hún alveg ómöguleg og getur ekki sofið og þá gef ég henni stíl 
En annars er allt gott að frétta! Vona að allt gangi bara vel, í Frankfurt, hér heima, og í skólanum þ.e. í prófunum,.........  Muna svo að kvitta! Einn daginn voru 128 heimsóknir en enginn sem kvittaði það er lélegt. Bara að segja :Kvitt og setja nafnið sitt og málið er dautt! Kommon!
»
01.11.2008 10:57:19 / ragga
Hæ hæ
Aftur komin helgi, enda fylgir það fast á hæla 5 daga vinnuviku.......hehe Sit hér á laugardagsmorgni að hlusta á bylgjuna og aðeins búin að vera á facebook sem er algjörlega ekki fyrir nema sem ættu helst að læra eitthvað á milli stríða....En Unnar er að vinna fyrir heimilinu eins og alla aðra daga....annað en ég sem safna bara skuldum! En það fer nú að sjá fyrir endann á því, ein önn og 1 mánuður eftir! Vá hvað tíminn flýgur maður......Ég er nú byrjuð á siðfræðiritgerðinni sem á að skila 23.nóv og svo ætlum við Ólöf að byrja á ritgerð í barn, fjölskylda og barnavernd sem á að skila 24. nóv og svo er ég að fara að byrja á öðru verkefni með Írisi sem á að skila 28. nóv að mig minnir. Eins gott að spýta í lófana þar sem að ég verð bara í dúllinu í Frankfurt 20.-24.nóv! Ekki hentugur tími fyrir skólakrakka.....
Jólastemmarinn farinn að segja aðeins til sín, jólaseríur á tilboði og svo á að kveikja á jólatrénu í jólalandinu í Blómaval.....hóh  Svo er maður ekki byrjaður á jólagjöfunum! En þær verða verslaðar von bráðar.....Pabbi er væntanlegur heim 12. nóv og vonandi fer hann í frí til 3.jan.
Ég verð búin í prófum 8. des og þá verður sko tekin almennileg jólahreingerning, allt skrúbbað og þrifið, þvegið og slegið!!
Hef eitthvað voðalega lítið að segja þessa dagana, man það oft þegar ég hef lokið við svona færslu.....Munið að skrifa kvitt þegar þið kíkið!!Þið verðið sko!
»
20.10.2008 12:47:37 / ragga
Er ekki verið að kinda mig. Þetta er í þriðja skiptið sem ég reyni að koma með færslu og tvisvar hafa þær dottið út! Er hægt að verða brjálæðari!!!!!
Jæja ég er á fullu að læra alltaf! Var að koma frá Ólöfu þar sem við vorum ásamt Kötlu að vinna í gagrýni sem gekk ekkert allt of vel! Komum ekki miklu í verk og eigum að skila þessu í næstu viku. Vonandi gengur þetta betur næst þegar við hittumst!
Kreppan skollin á, hún var ekki komin okkur vitandi seinast þegar ég hafði frá einhverju að segja. En ég er búin að taka slátur!! og elda það tvisvar og svo gerði Villa hamsa úr tólginni og hef hana með soðnum fiski sem er bara gott! Svo bakaði ég kryddbrauð á laugardaginn og gerði líka muffins og setti í frystinn, alltaf gott að eiga eitthvað með kaffinu fyrir börnin.... Svo núna þegar ég kaupi samlokubrauð þá set í 6 sneiðar í nestispoka og frysti og tek bara upp einn og einn poka þegar okkur vantar í staðinn fyrir að henda alltaf hálfu mygluðu brauði. Svo verður brauðið líka alltaf eins og nýtt þegar það kemur úr frystinum og þiðnar, svo mjúkt og gott. Svo var líka fyrsta cocoapuffs fría helgin síðan Patrekur var 1 árs held ég bara. Ég er samt ekkert hætt að kaupa það, en finn að það er alveg hægt að lifa án þess í nokkra daga!
Svo er brjálað að gera hjá mér, bæði í skólanum og í öðru. Reyna að finna tíma til að hreyfa sig fyrst að námskeiðið hjá Önnu Lilju er búið! Þá verð ég að vera dugleg sjálf. Nóvember er alveg þéttsetinn, 14. er það fló á skinni og svo 15. út að borða á fjörukránni með þ&e og svo 20. nóv fer ég til Frankfurt með saumaklúbbnum svo það er nóg að gera!
Jæja læt þetta duga í bil, þó ég hafi skrifað miklu meira í fyrri færslunni sem hvarf eins og sú fyrsta.....muna að kvitta takk.
»
16.09.2008 10:35:10 / ragga
Ég var að leita að síðunni minni á netinu og þá stóð bara fyrir aftan síðuheitið að hún væri lokuð! Ég var bara ýkt hissa. En allt komið í lag núna.  Það er bara allt brjálað að gera í skólanum! Það mætti halda að þessir kennarar haldi að maður sé bara í fagi hjá þeim! Svo mikil er vinnan! Var að skila geðveikt flóknu verkefni á sunnudag og svo á ég að taka hlutapróf sem fyrst og skila og lesa tvo kafla í aðferðafræðinni og skila inn gröfum úr æfingaverkefni, skífurit, súlurit og ég veit ekki hvað og hvað! Svo er ég á fullu í leikfiminni hjá Önnu Lilju og 15 öðrum konum! Svitnum alveg til helv.....!  Patreki og Lilju gengur báðum vel, eru ekkert að væla lengur. Svo er Lilja alveg hætt með bleyju, líka á nóttunni! Og svo er hún líka hætt með pelann......ekkert smá dugleg. Svo er ég að fara á eftir með Kike í sprautu í nesið, ef það verður ekki ófært sökum veðurofsa og rigningar. Mamma á afmæli á föstudaginn og afi 29. sept og helgina áður verður haldið upp á 70 ára afmælið hans í munaðarnesi. Tveir bústaðir leigðir og örugglega 50 manns sem mæta.  Svo er ég að fara að sína íbúðina í kvöld! Samt langar okkur eiginlega ekkert að flytja. Okkur líður svo vel hér! En maður veit svo sem aldrei hvað verður. Muna svo að kvitta takk!
»
16.09.2008 10:20:39 / ragga
Af hverju er síðan mín lokuð?
»
26.08.2008 17:15:51 / ragga
Að maður skuli ekki geta gengið óáreittur með konu maka sínum heim eftir menningarnótt án þess að verða fyrir barðinu á einhverjum djöfulsins aumingjum er að verða lýsandi dæmi um það hvernig kvöldið getur endað þegar farið er út á lífið í Reykjavík! Borg óttans, klárlega!  Enda hef ég enga löngun í djamm þar á bænum! Þessi maður á skilið fálkaorðuna ef eitthvað er! Að hafa lúbarið 5 menn svo á sá eftir að hafa verið sparkaður í götuna-aftan frá! Er bara snilld! Bara setja leyfi á þessa aumingja takk fyrir! Allir að læra sjálfsvörn, því fyrr því betra öryggisins vegna!!   En svo vaknaði maður auðvitað eldsnemma til þess að fylgjast með handboltasnillingunum okkar! Ekki besti leikur þeirra en hvað er hægt að biðja um þegar þeir mæta svona helvíti sterku liði frakkanna! Er samt mjög stolt! Til hamingju þið!  Kike er allur að stækka og verða duglegri og duglegri! Kann tvö trix, að sitja og liggja eftir pöntunum! Svo er hann að verða mjög duglegur við að pissa og kúka á dagblöð þótt það detti inn eitt og eitt slys! Oftast okkur að kenna þegar maður á að vita ca tímann sem hann þarf að pissa ef hann drekkur mikið! Svo ætla ég í þarnæstu viku ásamt Þórunni og litla bróður hans kike í Nesið með þá bræðurna í bólusetningu þar sem þeir eru að verða 12 vikna! Svo er pabbi að fara út á sjó  ekki gaman, en honum finnst hann vera alveg búinn að vera nógu lengi í landi og án tekna. Skil það svo sem. En ég ætla með þeim og við mamma ætlum í Vero Moda, dýraríkið og fá okkur að borða!  Svo er bara skólinn á mánudaginn! Er búin að seiva allar greinarnar sem við þurfum af Uglu í tölvuna! Ekkert smá mikið. Svo var ég að prenta og ganga frá námskeiðslýsingu og kennsluplani í samskipti og stjórnun þegar ég fatta að þessi lýsing er síðan 2007 og sendi kennaranum póst um að við værum ekki í neinum hóp........þá vantar allt nýtt þar!  En svo er ég líka byrjuð í leikfimi hjá Önnu Lilju, fór í morgun og er ekkert smá þreytt! Var alveg að líða yfir mig þar sem ég borðaði ekki nógu mikið í morgunmat! Óþægilegt maður! Passa upp á þetta næst! Svo á maður að skrifa niður allt sem maður borðar og hvað maður hreyfir sig mikið, alveg nákvæma lýsingu og svo er maður vigtaður og fitumældur!Vona að ég geti losnað við 4-6 kíló! Og orðið aðeins stinnari og stæltari! Svo eru allir uppáhalds þættirnir mínir væntanlegir í haust! Greys, gossip, prison, idolið og einhverjir fleiri sem ég man ekki í augnablikinu! Bara geggjað!  Munið svo að kvitta fyrir innlitið!!!Takk þið sem nennið!
»
03.08.2008 19:12:43 / ragga
Halló Smá innlegg, svona um Versló! Við erum búin að breyta íbúðinni í 4ra herbergja! Patrekur og Lilja deila nú svefnherberginu okkar, en því var breytt í tvö herbergi, og við erum í þeirra herbergi! Voðalega notalegt allt! Og allt önnur íbúð Svo fórum við á Strandirnar með Kollu og Jökli og co og það var mjög gaman! Fyrir utan mikla þoku nema á laugardeginum en þá var steik! Svo fórum við beint upp í Húsafell til mömmu og pabba á sunnudeginum, en þar var bara geggjaður hiti! Fórum svo heim á þriðjudeginum nema Patrekur sem var með þeim fram á fimmtudag! Á miðvikudaginn síðasta var svo farið á langasandinn, í fyrsta sinn í sumar og um 300 aðrir líka sem nutu blíðunnar! Svo fórum við heim í pottinn! Svo erum við núna orðnir hundaeigendur! En í morgun fengum við okkur pínkulítinn hvolp sem er blanda ad silki terrier og íslenskum. Algjör dúlla!  En hann er bara sætastur! Bið að heilsa í bili og muna svo að kvitta takk fyrir.
»
13.07.2008 20:19:00 / ragga
»
09.06.2008 22:01:50 / ragga
Löngu kominn tími á smá update!! Köben var æði! Geggjað veður, 30 og eitthvað stiga hiti og sól og blíða allan tímann!! Verslaði mikið og við gengum lappirnar á okkur í rúst! Þurfum að fara í fótsnyrtingu hið snarasta mundi ég segja!! Keypti mér 3 boli, 2 kjóla, 5 leggings, sokka, nærur, strigaskó, veski, tvær peysur, æfingabol og kvartbuxur. Unnar fékk tvennar buxur, síðermabol, geggjaðan æfingabol (mjög hot), nærur, sokka, stutterma skyrtu og þrjár peysur. atrekur fékk gallabuxur, kvartbuxur, nærur, sokka, bol og peysu og svo dót og tölvuleiki! Lilja fékk 4 samfellur, 3 kjóla, 2 boli, 2 sokkabuxur, kvartbuxur, pils og leggings. Svo keypti ég smá fyrir þau sem pössuðu fyrir okkur!! Takk innilega fyrir það! Þetta var æðisleg ferð!  Svo er bara vinna og vinna, var reyndar í dag á kynningafundi á vallarseli fyrir Lilju Björk en hún byrjar í aðlögun 18. ágúst! Hlakka svo til fyrir hennar hönd! Verður algjör stuðbolti þarna!! Svo er annar fundur á miðvikudaginn uppi í Grundaskóla kl. 20 fyrir Patrek, sem er svona mis spenntur fyrir skólanum! En hlakkar til að hætta samt á leikskóla! Ætla rétt að vona að ég fái afsláttinn sem ég á inni síðan í febrúar en hef ekki fengið þar sem ég er með eitt barn hjá dagmömmu og eitt á leikskóla. Nenni ekki með þetta í blöðin en ég mun gera það ef ég fæ þetta ekki endurgreitt eða sem inneign!!  Svo var ég að fá seinustu einkunnina fyrir þess önn! Fékk 9 í menningu og samfélagi! 8 í barnið þitt er nemandi minn, 7 í stefnur og starfi, og 8 í tónmennt 2! Klárlega besta önnin mín hingað til!!  Bara geggjað! Svo verður partý hér á írsku dögunum! Grill veisla á föstudaginn og fyllerí á laugardaginn, ekkert skal stöðva mig skal ég segja ykkur! Sálin og allur pakkin á lopanum!!!!!!!!!!!! Er að missa mig! Tel hreinlega niður! Þá verð ég líka komin í sumarfrí og Patrekur hættur í leikskólanum og Lilja hætt hjá dagmömmunni! Svo fer Unnar að detta í frí helgina á eftir og svo fer hann í lögguna í ágúst. Ætlum að breyta herberginu okkar í tvö barnaherbergi og þeirra herbergi í okkar svefnherbergi! Bara kúl!  Muna svo að kvitta takk!!
»
25.05.2008 21:53:00 / ragga
Hæ hæ Vil byrja á því að minna á að kvitta!!!  Jæja í dag eru 4 dagar þangað til við skötuhjú förum saman til kóngsins köbenhavn! Við höfum ekki farið tvö til útlanda síðan ég útskrifaðist úr fjölbraut árið 2000! En svona er þetta bara þegar maður eignast börn! En Ólöf og Hjalti ætla að byrja vaktina á fimmtudaginn og vera með þau hér fram á laugardag, en þá kemur pabbi af sjónum og hann og mamma verða með þau heima hjá þeim fram á mánudag skilst mér! Þau eru bara æði! Annars hefðum við Rósa farið tvær, en það verður bara notalegt að geta aðeins hugsað bara um sig, ekki verandi í eltingaleik í fríhöfninni eða með sífelldar áhyggjur af því að barninu manns verði hrifsað í burtu þegar maður rétt lítur af þeim. En þannig var það í fyrra á Spáni þegar Madeleine litla var á öllum forsíðum þarna úti! En maður var bara með þau klesst upp við sig allan tímann, enda veitir ekki af!!  Svo er fundur á morgun út af flóttamönnunum í tónbergi kl 17:00! Við erum að spá í að mæta og athuga stemninguna! Er samt hrædd um að ef Unnar fari þá missi hann sig aðeins.......En ég hefði líka viljað fá Magnús til að mæta!! Ég á enn eftir að fá tvær einkunnir, eða 4! einkunn fyrir lokaverkefnið í tónmennt og líka stóra verkefnið í menningu og svo lokalokaeinkunnirnar úr báðum! Vona að ég fái eitthvað á morgun!  Svo er ég að drepast úr hálsbólgu, vona að ég sé ekki að fá streptokokka svona rétt fyrir flugtak! Læt taka stroku á morgun ef ég skána ekkert! Fékk mér íbúfen, hvítlaukstöflu, c vítamín og lýsi og omega 3 6 og 9! Vona eftir skyndilausn!  Svo var ég ekkert lítið svekkt með gærkvöldið! Skil ekki afhverju ég læri aldrei. Þetta er og verður aldrei nein söngvakeppni! Er ekkert nema austantjalds sleikjuháttur og ekkert annað! Bara pirrandi, ég hefði getað nánast líst þessu sjálf án þess að heyra stigin frá þessu pakki! 14. sætið er ekki ásættanlegt miðað við hvað við vorum með flott lag! Ég á aldrei nokkurn tímann eftir að setja vinningslagið í spilarann og vera alveg "vá , þetta er bara geggjað lag""" not, það var það alls ekki!! Frekar þá lagið sem var í 3. sætinu! En nú er ég alveg hætt að gera mér einhverjar vonir um að þetta breytist í söngvakeppni því það mun ekki gerast! Þetta er svona: ég skal kjósa þig ef þú kýst mig og þá skal ég ekki fara í stríð við þig!!!!Hálvitar!!Er alveg brjál! En danir rúla það er alveg á hreinu, eina fólkið með einhverju viti sem gáfu okkur 12 stig. Og ég vil meina að það sé enginn sleikjuháttur því það búa náttúrulega gífurlega margir íslendingar í danmörku!  En jæja þetta er orðið gott, Muna svo að kvitta!
»
20.05.2008 14:23:15 / ragga
Hæ hæ Þið eruð eitthvað slök við að kvitta finnst mér!!  En ég er heima með Lilju veika og Patrek reyndar líka sem er ný kominn úr leikskólanum! Hún er búin að vera með hita síðan á föstudaginn og er enn með 38,3! Pirrandi í góða veðrinu! Unnar var heima í gær og verður svo heima á morgun! Vona að hún verði orðin hress fyrir júróvisjón matarboðið hjá Elínu og Sigga á fimmtudaginn!! Krossa fingur og vona að Ísland komist áfram!  En lilja fékk pensilín í gær því hún er komin með ofaní annað lungað! Þannig að henni hlýtur að fara að skána!  Svo er ÍA-FRAM í kvöld! Áfram ÍA drullist þið núna til þess að vinna......Plís! Og ég að fara á starfsmannafund svo Jói bró ætlar að bjarga okkur (er algjör draumur!) því Unnar og Patrekur ætla á leikinn að sjálfsögðu. Svo er ég búin að fá eina einkunn í viðbót en ég fæ 8 út úr áfanganum barnið þitt er nemandi minn! Er bara sátt við það! Hef enn ekkert heyrt í menningu og samfélagi kennaranum!! Pirrandi maður!  Svo vil ég bara koma minni skoðun á framfæri um þetta: Flóttafólk velkomið á Akranes!! Ég er bara ekkert sammála þessum vitleysingum í bæjarstjórninni! Var alveg á sama bandi og Magnús Þór um að þetta væri ekki rétti tíminn og ekki rétti staðurinn. Það var nú bara nýlega ákveðið að barnið mitt sem er að fara í grunnskóla í haust nánar tiltekið Grundaskóla, að hann þyrfti ekki að fara á yngstu barna deild á Garðaseli, en þar er notaður gamall kennslu skúr sem áður var notaður við FVA, og átti að færa hann yfir á lóð Grunnskólans þar sem 1.bekkjar börn áttu að hefja sýna grunnskólagöngu! En sem betur fer var það flautað af! Það er staðreynd að Grunnskólarnir tveir sem hér eru, eru yfirfullir! Leikskólarnir 3 eru líka fullbókaður og nýi leikskólinn sem á að opna í ágúst er það líka! HB Grandi er að fara að loka enda búin að segja upp megninu af starfsfólkinu sínu! Hvar eiga flótta börnin að fara í leikskóla og í grunnskóla spyr ég? Hvar eiga konurnar að fá vinnu og hvar á þetta fólk að búa! EKki eru til nægar félagslegar íbúðir einu sinni fyrir fólkið sem býr nú þegar í okkar ágæta bæjarfélagi! Ég hef heyrt að með hverri fjölskyldu fái bæjarbatteríið 3 milljónir á fjölskyldu sem á eftir að hrökkva skammt þegar kemur að því að halda þessu fólki uppi sem ekki kann að vinna, talar ekki málið og á ekkert!!! Af hverju þurfa allir flóttamenn þessa heims sem ísland vill taka á móti endilega koma á þennan hluta landsins. Af hverju ekki á austurlandið þar sem vantar 200 manns í vinnu við nýja álverið! OG þar eru örugglega laus skóla, leikskóla og íbúðarpláss fyrir þetta fólk þar sem fólk hefur flutt hingað þaðan!!! Þetta er mín skoðun á þessu! Ég held að Gísli og co eigi eftir að fá þetta í hausinn!! sorrý   En svo er saumó á morgun og American Idolið er í beinni líka kl 23.00 ef þið vissuð það ekki!  En annars er ekki mikið í gangi! Útskriftarveisla hjá Patreki og hinum krökkunum á Lundi á miðvikudaginn í næstu viku og svo erum við Rósa á leið til Köben daginn eftir! Hlakka voða mikið til!   Muniði svo að kvitta það er ekkert erfitt sko!
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|